Ég fíla'ð dilla dilla!

Anna & Kata

10.04.2007 19:30:51 / kata

ljóta ísland

Komin á klakann aftur og ég get alveg sagt að ég vilji ekki vera hérna í kuldanum þegar það er 30°c hiti í Orlando:( Hérna er smá ferðasaga

  • Til að byrja með ætla ég að segja frá því fólki sem lagði upp í þessa ferð. Ein stór fjölskylda sem skiptist í 5 litlar fjölskyldur. Fyrst eru það foreldrarnir Jón og Ásta. Svo koma systkinin og fjölskyldurnar. Gummi er elstur og er giftur Guðnýju og þau eiga 3 börn, Ásdís, Arnór og Þormar. Svo er það Rannveig sem er gift Kjartani og þau eiga Kolfinnu og Iðunni. Elín kemur næst og hún er með Ása. Örverpið er seinast sem er Ingvar og hann situr uppi með mig:P
  • Þema ferðarinnar var Borat. Það var  óspart sagt very nice, high five og sexytime. Þessu var blandað inn í ýmsar setningar hvort sem það átti við eða ekki. Svo var Þormari sem er 3 ára kennt að segja very nice og high five, ekki viðeigandi að kenna honum sexytime... allavega ekki strax
  • Við komum sunnudagskvöldið 25 mars í villuna okkar og komum okkur fyrir, skoðuðum húsið og sundlaugina.... ekki amarlegar aðstæður. Mánudagurinn fór í að versla:D gaman gaman eyða eyða. Við fórum í SuperTarget á þriðjudeginum og þar er sko hægt að versla. Ímyndaðu þér 10x Hagkaup! enda vorum við í rúma 5 tíma þar. Svo fórum við á Hootersog það var upplifun gellur í STUTTbuxum og hvítum hlýrabolum og með brjóstin að fylla út í! Svo var haldin afmælisveisla handa Kolfinnu því hún varð 10ára daginn áður en við fórum út.
  • Á miðvikudeginum vorum við Ásta og Elín skyldnar einar eftir heima meðan barnafólkið fór í Disney og kallarnir okkar að versla golf og móturhjólavörur. Það var lítið hægt að gera annað en að drekka og skemmta okkur í sundlauginni.... og það gerðum við. Þeir komu heim um 4 og þá vorum við búnar að drekka síðan um 11 og vorum í góðu stuði. Fórum svo út að borða á Olive Garden og í skrautlegt mini golf.
  • Fimmtudagurinn fór í að versla í Florida Mall:) Föstudagurinn var afslöppun sem endaði á því að fara út að borða á Cheesecake Factory þar sem ég kynntist himneskri ostaköku.... rasperry white chokolate truffle cheesecake.... nammi namm. Laugardeginum var eytt á vesturströnd Florida í Sarasota til að baða okkur í sjónum og þá brunnu frekar margir... Kjartan fékk falleg handaför á bakið:)
  • Sunnudagurinn var nýttur í að slappa af því flestir voru það brunnir að þeir gátu ekki farið út, nema við naglarnir sem fórum að versla! Svo var tekið smá singstar;) Á mánudeginum fórum við í Old Town sem er alveg eins og gamall amerískur bær og þar voru tívolí tæki og draugahús sem var frekar scary! Ég fór líka í einn rússíbana sem leit út fyrir að vera lítill og amarlegur en hann tók á8| Um kvöldið fórum við á Capone dinner and show sem var mjög flott, við horfðum á söngleik meðan við borðuðum. Eftir það fórum við aftur í Old Town því Ási og Ingvar ætluðu í sling shot sem er 100m hátt. Til þess að Ingvar myndi þora skaust hann inn á næsta bar og skellti í sig heilu glasi af Jack Daniels sem virkaði vel. Þeir voru hífðir upp í 100m róluna og hröpuðu svo 30-40m í frjálsu falli og skutust svo fram.... þetta var magnað! Ég sat niðri að horfa á og ég var að skíta á mig ég var svo hrædd fyrir þeirra hönd því ég er svo lofthrædd en þeir gátu þetta! stolt af ykkur:haha:
  • Á þriðjudeginum fórum við að versla ferðatöskur til að koma öllu heila klabbinu heim:!: Miðvikudagurinn var magnaður! Ég, Ingvar, Kjartan og Kolfinna fórum í Universal garðana(þeir eru 2). Ertu að grínast í mér hvað þetta er flott! ég var dolfallin allan tímann, það er allt lagt í þetta öll smáatriði eru eins og í myndunum! Jurassic Park, Spiderman, Poseidon , Jaws, Seuss og ég gæti lengi talið upp. Þegar við vorum að bíða í biðröðum fyrir tækin þá var sjaldan leiðinlegt því það var allt svo myndrænt og nóg að skoða! Spiderman 3D tækið var magnað, það var eins og kallarnir kæmu alveg upp að þér og þú varst inni í showinu.
  • Við fórum í Wet & Wild á fimmtudeginum, þvílíkt fjör og magnaðar rennibrautir! Um kvöldið fórum við á Red Lobster sem er magnaður sjávarréttarstaður. Hægt að velja lifandi humar til að borða. Föstudagurinn var afslöppun og að pakka niður svo fórum við út að borða á Hulihan's.
  • Laugardagurinn fór í heimferðina sem var mjöööög leiðinleg því það er erfitt að kveðja svona æðislegt land þar sem er heitt og sólskin mest allt árið!

Svona var útlandaferðin mín! Ég komst líka að því að ég er með mjög takmarkað af litafrumum í líkamanum því ég er ekkert brún:( smá útitekin en það skiptir ekki því ég náði að versla versla versla:haha:

Later, Katrín


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 13:39:53 / kata

Orlando baby

Það eru aðeins 10 dagar þangað til ég fer til Orlando að baða mig í sólinni og eins og ég segi á góðri íslensku shop my ass off! 8) Langaði bara að deila þessu með ykkur;)

Katie:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 15:22:03 / kata

Toffypops

Hædí mín þetta blogg er fyrir þig!

Bloggleysið stafar af skorti á hugmyndum til að skrifa um.... mér leiðist að skrifa um liðna atburði nema þeir hafi verið magnificent:) En ég fór á LayLow tónleika í gær og þeir voru frábærir, hún er svo hlédræg og er ekkert að gera úr því hvað hún er góð og ef ég apa eftir Ingvari þá er hún kvenkyns Johnny Cash sem er ekki slæmt.

Hins vegar ætla ég að skíta yfir Plúsferðir, Úrval Útsýn og Heimsferðir því það er allt sama fyrirtækið.... Kvennó gaf þeim það verkefni að koma okkur í útskriftarferð til Tyrklands og kynningin hjá þeim var mjög góð og allt lofaði góðu. Svo núna þegar við erum að bóka þá kemur í ljós að það eru bara 90 flugsæti og 112 pláss á hóteli(notabene að við erum á tveimur hótelum og það hótel sem var sagt að við yrðum á eru bara 32 pláss af þessum 112). Árgangurin okkar er 140 manns og við erum mjög mikill djammárgangur þannig að minnsta kosti 120-130 ætla að fara plús má taka maka þannig þetta er um 150 manns! Hvernig getur ferðaskrifstofan ákveðið að það séu bara 90 pláss í boði?? og ég ætla aðeins að skíta yfir útskrifarnefnd þó þær séu að gera góða hluti..... AFHVERJU senduð þið þeim bara email? þið hefðu átt að fara niður á skrifstofu hjá þeim og hella ykkur yfir þau, allavega hringja og öskra! Ef þessu verður ekki reddað almennilega er búið að taka af mér útskriftarferðina!8|

Og í lokin ætla ég að þakka þeim sem fann upp núðlur, ég elska þig


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 00:49:06 / kata

Happy happy:)

Ef þetta lag kemur manni ekki í gott skap þá skal ég hundur heita! mæli með að allir hlusti á það
Mika-Grace Kelly
Do I attract you?
Do I repulse you with my queasy smile? 
Am I too dirty? 
Am I too flirty? 
Do I like what you like? 
I could be wholesome 
I could be loathsome 
I guess Im a little bit shy 
Why dont you like me? 
Why dont you like me without making me try?  
I try to be like Grace Kelly 
But all her looks were too sad 
So I try a little Freddie 
I've gone identity mad!  
I could be brown 
I could be blue 
I could be violet like sky 
I could be hurtful 
I could be purple 
I could be anything you like  
Gotta be green 
Gotta be mean 
Gotta be everything more  
Why dont you like me? 
Why dont you like me? 
Why dont you walk out the door!  
How can I help it 
How can I help it 
How can I help what you think? 
Hello my baby Hello my baby 
Putting my life on the brink  
Why dont you like me 
Why dont you like me 
Why dont you like yourself?  
Should I bend over? 
Should I look older just to be put on your shelf?  
I try to be like Grace Kelly 
But all her looks were too sad 
So I try a little Freddie 
I've gone identity mad!  
I could be brown 
I could be blue 
I could be violet sky 
I could be hurtful 
I could be purple 
I could be anything you like  
Gotta be green 
Gotta be mean 
Gotta be everything more 
Why dont you like me? 
Why dont you like me?
Why dont you walk out the door!  
Say what you want to satisfy yourself 
But you only want what everybody else says you should want  
I could be brown 
I could be blue 
I could be violet like sky 
I could be hurtful 
I could be purple 
I could be anything you like  
Gotta be green 
Gotta be mean 
Gotta be everything more 
Why dont you like me?  
Why dont you like me? 
Why dont you walk out the door!  
I could be brown 
I could be blue 
I could be violet like sky 
I could be hurtful 
I could be purple 
I could be anything you like  
Gotta be green 
Gotta be mean 
Gotta be everything more 
Why dont you like me?  
walk out the door!

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 12:41:54 / kata

Blogg?

Kannski ætti ég að vera duglegri að blogga... til hvers? það er aldrei kommentað og ég held að það lesi enginn þetta rugl í mér.

En næstu helgi er þorrablótið í Þorlákshöfn:D annað skiptið sem ég fer og ég ætla að notu þau stóru orð að þetta er skemmtilegasta ball sem hægt er að fara á! ég hef sjaldan ef aldrei skemmt mér eins vel og í fyrra! kannski kom svolítið mikið áfengi fyrir sögu en það er bara allt í lagi8) alka seltzer lagar það.

Kannski saga að segja frá því að í fyrra þá kom Heimir frændi minn með okkur á þorrablótið og hann átti að gista hjá frænku okkar. Svo þegar að því kom fór hann bara með okkur öllum heim til Elínar systur Ingvars því við ætluðum að fá okkur að borða og svo fórum við bara að sofa. Daginn eftir þá vorum 15 missed calls á öllum símunum frá Binna og Billa frænda og þegar við hringdum þá voru þeir þvílíkt áhyggjufullir og sögðust ekki vita hvar Heimir væri. Við sögðum bara sallarólegar að hann væri með okkur og þeir urðu brjálaðir. Þá höfðu þeir verið hálfa nóttina að leita að Heimi!!! fóru aftur upp í íþróttahús þar sem blótið var haldið og allt læst og enginn Heimir nema 2 manneskjur sem voru fastar inni í íþróttahúsinu því það dó! hahah þau voru læst inni fram á næsta dag!

Og í næstu viku eru tjarnadagarnir og ÁRSHÁTÍÐIN! woohooo loksins er maður nógu stór til að mega gista á hinu stórfenglega Hótel Selfoss. Ég ætla að skella mér á hestbak á tjarnadögunum... gobbi gobb íha! segja hestar ekki það annars:lol:

Það er verið að sýna limp bizkit á sirkus... voru þeir ekki löngu útbrunnir?


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 20:42:19 / anam

já.. tíminn líðu

Blessuð veriði og gleðilegt nýtt ár.. ár sem verður ár gleði og hamingju og svo margs annars.. 2007!! hafiði pælt í því hvað það var ótrúlega stutt síðan aldamótin 2000 voru! man meira að segja í hverju ég var.. hvað ég var að gera og með hverjum. en.. áramótin 2007 eyddi ég hér með familíunni. borðuðum dýrindis mat eins og flest aðra daga svona milli jól og áramóta.. svo kl 8 var haldið á skrúðgöngu og endað á brennu hér í skerjó. þetta er víst árlegt og við erum með sér brennu og allt. margt var fólkið og svaka flott "hljómsveit" sá um söng. komum heim að henni lokinni og fengum okkur eftirrétt og horfðum svo á skaupið sem mér fannst.. tja ekkert spes?. hef aldrei horft á það áður og er kannski bara ekki með húmorinn í mér.. veit ekki?

Hér var svo bara partý langt fram á nótt.. fullt af flottu og fullu fólki. Minn hópur stakk svo bara af í annað partý.. sem var já.. ekki beint party.. hahaha þið sem fóruð með mér.. já allavega. var komin heim svo bara um half 7 en viti menn.. ég var læst úti. enginn heima. enginn lykill á leynistaðnum né neitt. hringdi og hringdi í alla familíunna en.. ekkert svar. fann ekki annað ráð en að stinga mer inn um gluggann hjá mér, þar sem allir aðrir voru lokaðir. það gekk svona semí vel og um leið og ég var buin að því.. heyri ég í mö og pa frammi.. jaja.. þau voru að koma heim! týpist. skemmti mer ótrúlega vel og þetta verður gert að hefð, að vera heima um áramót og jól!! þó ég ætla til ammeríku aftur næst en.. eftir það bara =)

Jólin voru ótrúlega fín líka. Vorum bara hér heima familían + einn gestur. Fengum brjálað góðann kalkún og gegggjaðan ís og "muss" (sem ég gerði btw. ) . Fékk rosa margt fallegt í jólagjöf.. (man samt aldrei þegar ég er að skrifa eða segja frá) en réttast er að segja frá því að ég fékk svaka fína myndavél sem er búin að njóta sín þvílíkt síðan. fékk bol og leggings og geggjaðan eyrnalokk frá jojo minni.. já plús bleikan kött, sem fylgir mer hvert sem eg fer. fékk ilmvötn, skart, skrem, dvd og margt margt fleirra.

Skólinn er byrjaður aftur. fórum í hann á föstud. verð í 17 einingum í töflu.. sem er bara lala, langði í einn áfanga í viðbót en fékk það ekki.. löng og leiðinleg saga að segja frá því, svo ég sleppi því bara, verð í 6 einingum í fjarnámi og 6 í kvöldskóla. og svo fer ég á eitt námskeið og þá eru eftir 9 einingar allt í allt sem ég tek í sumarskóla og þá verð ég BÚIN og flyt út. AHH þrái sól og sumar og íbúð - of my own

verðum að fara að hressa upp á þessa blessuðu síðu okkar.. en .. held að enginn lesi hana nema svona .. 1 og 1 á mánaðafresti.. hahha.. en . ef maður hefur frá einhverju að segja er alveg eins hægt að koma því út úr sér eins og hvar annarstaðar.. eki satt?

þangað til næst

anna magga, anna lóa , anna linda og the little one =)  (notaðist alltaf við þessi nöfn á aldrinum 2-7 ára) finnst það snilld


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 15:20:46 / kata

Það eru komin jól elskurnar mínar!

Gleðileg jól allir saman og farsælt komandi nýtt ár! Takk fyrir síðasta ár sem hefur verið hreint frábær! Hafið það sem allra best um hátíðina og hlakka til að sjá ykkur á nýju ári.

Jólakveðja Katrín Ósk


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 16:40:49 / anam

Sálarball baby

Jébb, mikið rétt krakkar góðir og slæmir. Við héldum leið okkar a Nasa á föstudaginn á brjálað sálarball á Nasa! það var hörku gaman og rosa stemming langt fram á nótt. Magni tók eitt lag meira að segja .. Og það er saga að segja frá því hvernig við Hugrún fórum heim, í geeeeeðveikum bíl, hvort það var "porsh" glænyjum, eða eitthvað álíka. Vorum alveg að fíla okkur í tætlur sko! Á laugard fór ég bara að hjálpa ömmu og afa að flytja og svo tókum við Dabbi laaaangan rúnt um allan bæjinn!

Á fimmtudaginn fórum við Hugrún einnig í bíó á The Holiday ..Toby hvað segi ég nu.. nú er það bara 100% Jude Law!! :lol: . Búin að tala meira að segja við hann frænda minn sem er í Japan að kaupa hana handa mér og gefa mér.. ohh myyy! Get nú ekki annað sagt en að þettta hafi verið frábær endir á löngum jólaprófum! Sit nu bara hér heima að horfa á Charmed, svo skemmtilegir þætti.. steiktir, en skemmtilegir! Hugrún var svo góð að lána mér seríju sem systir hennar átti.. hehe.. En, ég skelli inn hér nokkrum myndum síðar af ballinu.. á meðan horfiði bara á þessa

                  

                        Sexy Sexy Sexy .. grrrr!


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 12:03:02 / kata

Mörgæsir!!

Kannski eins og flestir sem þekkja mig vita þá elska ég mörgæsir og ég ætla að tileinka blogginu þeim:D Kannski af því ég hef ekkert annað að blogga um en....

Mörgæsir lifa ekki einungis á Suðurskautslandinu, heldur líka á ströndum Frakklands, Madagaskar og Galapagos eyjum svo eitthvað sé nefnt. Myndirnar og upplýsingarnar eru af Keisaramörgæsum sem eru stærstar og lifa á Suðurskautinu.

+

Ungarnir eru auðvitað sætastir, svona fluffy og cute. En þeir missa dúninn þegar þeir eldast. Mörgæsir eignast oft bara einn unga í hvert skipti því það fer svo mikið orka í eggið og ef þær eignast fleiri eru þeir minni en sá fyrsti. Hann gengur líka fyrir í matargjöf.

Mér finnst líka æðislegt við mörgæsir að þær finna sér bara einn maka sem þær hafa alla ævi, nema annar deyji á undan. Eru með sérstakt hljóð til að finna hvor aðra þegar mikill hópur af mörgæsum eru saman.

Þegar kvenfuglinn er búinn að verpa egginu þá lætur hún karlfuglinn fá það og hann liggur á því þangað til það ungast út. En þegar hún lætur hann fá eggið þá þarf að gera það mjög fljótt og það má ekki snerta jörðina lengi því þá getur það kólnar og fóstrið dáið.

En nóg í bili, og í tilefni að ég sé komin í jólafrí....

Happy Holidays from Tux! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 12:15:03 / kata

Hvað er að ske?

Okey ég laug.... draumafárið mitt er ekki búið8| Þessi var frekar weird en fyndinn, snýst um bílskúr, huges hummer, ninja kettlinga og morðtilraun!

Ég semsagt var að koma í einhverja villu og fór niðrí bílskúr og þar var einhver gaur sem átti huges blæju Hummer. Hann var það tók að hann passaði ekki í bílskúrinn og var frekar rispaður. Ég var að reyna að koma mér í bílinn til að koma honum út en sætin voru minni en músarhola og svo kom gaurinn sem átti bílinn og sagðist gera þetta og ég fór frá inn í einhvað herbergi hjá stiganum upp. Kemur vinur gaursins niður með 3 kettlinga og segir mér að hann sé að þjálfa þá sem árásarketti. Það næsta sem ég veit eru þeir að ráðast á mig og kyrkja mig! Ég hendi þeim af mér jafnóðum en þeir stökkva alltaf aftur á mig og hanga í mér. Það fynda er að þeir eru ekki að klóra mig heldur að kyrkja mig!:$

Nú þarf ég að fara að læra Deutsch svo ég nái prófinu á morgun. Auf Wiedersehen;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 10:08:10 / kata

Próf smóf

Jæja nú er þetta blessaða prófafár byrjað! Æjj það er svosem ágætt, liggja bara heima í leti og læra og svo þegar það er búið þá er komið jólafrí:haha:

En þetta draumafár mitt er víst á enda í bili. Mig dreymdi samt fyrir stuttu að ég væri í dýragarði og það væru selir í einhverjum göngum og björn sem fór í heimsókn til kærustu sinnar sem var ekki björn minnir mig og svo mörgæsir  á trampólíni! mjög skondinn draumur:)

En heyrðu ég verð víst að halda áfram að læra fyrir félagsfræði svo ég falli ekki8| langaði bara svona aðeins að láta heyra í mér því ég veit að þið eruð farin að sakna mín:P

aloha honeys, kata


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 10:53:40 / kata

Draumafár??

ÉG VEIT EKKI HVAÐ ER Í GANGI?!?!8| 3 weird draumar í röð!!

Ég var búin að segja ykkur frá fyrsta draumnum, nóttina eftir það dreymdi mig að ég væri á Vigra(togaranum sem ég vann á í sumar) og var að vinna niðrí vinnlsu. Ég svka dugleg að skera innyflin úr fiskunum og sollis:P Heiðrún var þarna með mér og hún var á hinni vaktinni og við skiptumst alltaf á að nota stígvélin. Nema hvað ég vildi fá mín eigin stígvél en þau voru ekki til og ég varð brjáluð.  Oki hann var ekki það svakalegur en í nótt var STEYPA!

Ég var semsagt með einhverjum dúdda sem átti að vera Ingvar og hann var að nudda á mér lappirnar, svaka næs en nema hvað allt í einu er ég með eitthvað huges trukkalessu tatto á ilina! Þetta var mynd af steingeit og svo afmælisdag Ingvars undir og minn fyrir ofan pínulítið. Ekki alveg að skilja conceptið með því?? Allt í einu var ég komin í einhvern kofa upp í sveit að sýna öllum tattooið og það var farið að flagna smá eins og þetta væri brunasár:S frekar gross og svo var ég að fela mig fyrir einhverjum man ekki alveg hvernig það var því ég er í svo miklu sjokki yfir tattooinu8|

Ef einhver kann lausn eða skýringu á þessu draumafári mínu endilega komið með comment:!:

alohas babies8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 10:16:44 / kata

27. nóvember og skrítinn draumur!

Ekki mikið að segja frá þessa dagana....

Nema það að eftir viku er ég að byrja í prófunum! ekki alveg tilbúin í það en ég get hrósað því að þau eru bara 5 í próftöflunni og eitt sem er næsta fimmtudag. Ég byrja semsagt 5.des í prófunum og er búin 14.des, þá er ég komin í sweeeet, jólafrí:D Það eina sem er vesen er að finna jólagjafirnar:$ ég er svo hugmyndasnauð að ég veit aldrei hvað á að kaupa. Ég redda því eins og alltaf;)

Mig dreymdi svakalega skrítinn draum sem samanstóð af, togara, rockstar tónleikum, áfengi, íslenskutíma, önnu, slagsmálum og gaur sem var með mér í grunnskóla. Mig dreymdi semsagt að ég væri á rockstar tónleikunum með Önnu og þeir voru á togaranum sem ég var á í sumar. Fyrst kom Storm á svið og byrjaði að syngja og þá kom Dilana. Ég ákvað svo að fara upp að sækja áfengi og gerði það nema hvað þegar ég kom niður þá var ég komin í íslenskutíma til Guðrúnar og hún vildi ekki hleypa mér út fyrr og ég var að missa af tónleikunum. Þegar loksins komst út voru tónleikarnir búnir og ég var að fara að koma mér heim og ég sá Önnu vera að labba út þvílíkt fúla. Ég spyr hana hvað sé að og hún hellir sér yfir sig hvað ég sé ömuleg og alltaf að beila á sér og ég segi henni að ég hafi verið föst í íslenskutíma en hún trúir mér ekki og ég verð frekar pirruð og segi ehnni að hún hafi ekki efni á að vera fúl og viti menn svo byrjum við bara að slást!8|  Svo kemur gaur sem heitir Agnar og var með mér í grunnskóla og biður um far heim, þá er kallað hífopp og ég hleyp upp í brú að sjá trollið vera híft upp og áður en ég vakna hendir pabbi mér í trollið fullt af fiski!

Já þetta var mjög fróðlegur draumur og ég er enn að reyna að átta mig á honum! En ég er farin í næsta tíma, cya honey pies;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 11:59:39 / kata

Pælið í þessu

Anna sagði mér þetta áðan og ég ákvað að deila þessu með ykkur:)

Hvað ef maður myndi lifa lífinu aftur á bak? Byrja á því að deyja, vera svo á elliheimili í 10 ár og láta hugsa um sig, vinna í 40 ár, vera ungur og djamma í 10 ár, verða svo barn og þurfa ekki að hugsa um neitt og enda svo sem FULLNÆGING! 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 17:25:22 / kata

hæhæ

Það var skellt sér á ball í Mosó með Sálinni í gær, fæ aldrei nóg af böllum með þeim. Ég, Peta og Kirsten fórum saman og við vorum fremst allt ballið og svo eftir hlé þá var Stebbi með opna buxnaklauf og ég benti Petu á það og helduru ekki að hún hafi bent Stebba á það og hjálpað honum að renna upp! Svo eftir ballið þegar við vorum að bíða eftir að vera sóttar þá koma Stebbi og Gummi inn í salinn og Stebbi byrjar að tala við Petu og þakka henni fyrir að hjálpa sér og bíður okkur far en við neituðum því við vorum með far og svo var hann bara að spjalla við okkur. Svo sagði hann bara endilega komið á næstu böll:) heheheheh bara fyndið

En ég veit ekki hvort ég er að fíla snjóinn, hann er æði en samt ekki ef maður á bíl því ég er föst:evil: en núna ætla ég bara að læra og tjilla í kvöld;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4